Pálmi Gunnars á tímamótum: „Á þessum degi fyrir 28 árum var ég í djúpum skít andlega og líkamlega“

Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson hefur verið án áfengis og fíkniefna í 28 ár, en hann greinir frá þessu í færslu á Facebook.

„Á þessum degi fyrir 28 árum var ég í djúpum skít andlega og líkamlega. Glíman við fíknina hafði um langan tíma að mestu verið á einn veg, inní hringinn og yppon í fyrstu lotu. Þannig hafði það gengið ár eftir ár og ég er heppinn að hafa lifað það af,“ skrifar Pálmi.

Þann 8. mars 1995 tók Pálmi afdrifaríka ákvörðun sem átti eftir að hafa einstök áhrif á líf hans.

„8. mars árið 1995 er rækilega merktur í bókina sem einn af bestu dögum lífs míns því að þá hætti ég að drekka og dópa. Ég er fullur þakklætis fyrir annað tækifæri, fólkið mitt, vini og alla þá sem hafa gert líf mitt að því sem það er í dag,“ skrifar Pálmi.

Fleiri fréttir