Pabbi Gylfa segir að um mannréttindabrot sé að ræða: „Annað hvort verða þeir að ákæra manninn eða láta hann lausan“

Sigurður Aðal­steins­son, faðir ís­lenska knatt­spyrnu­mannsins Gylfa Þórs Sigurðs­sonar sem var hand­tekinn í júlí á síðasta ári, grunaður um kyn­ferðis­brot gegn ó­lög­ráða ein­stak­lingi segir að það geti ekki gengið í réttar­ríki að menn séu látnir dúsa í eitt og hálft ár er­lendis án dóms og laga en Gylfi hefur verið í far­banni á Bret­landi í rúma fimm­tán mánuði. Þetta segir hann í viðtali við Fréttablaðið.

„Fjár­hags­lega getur hann (Gylfi Þór) klofið þetta en það eru ekki allir í sömu stöðu. Meðal­maðurinn getur ekki verið kyrr­settur í öðru landi, verið þar og bara beðið og beðið enda­laust eftir því sem lög­reglunni þóknast að á­kveða hvort menn hafi gert eitt­hvað mis­jafnt.

Eina sem ég er að segja er að ef ein­hver maður er kyrr­settur í ein­hverju landi fyrir eitt­hvað á­ætlað brot, þá geturðu ekki látið hann dúsa þar í eitt ár, eitt og hálft ár og beðið bara enda­laust. Á hann bara að vera á hóteli á meðan eða íbúð? Hvað á hann að gera?“

Sigurður greindi frá því í við­tali á vef Vísis fyrir tíu dögum síðan að sótt hefði verið um flutning á lög­heimili Gylfa til Ís­lands. Hins vegar geti flutningurinn ekki gengið í gegn sökum þess að Gylfi er í far­banni og svo flutningur á lög­heimili geti gengið í gegn þarf um­sóknar­aðilinn að mæta í eigin per­sónu og fram­vísa skil­ríkjum hér heima en með því væri Gylfi að gerast brot­legur við lög.

Fjöl­skylda hans leitaði til utan­ríkis­ráðu­neytisins í von um að­stoð en í skrif­legu svari við fyrir­spurn Frétta­blaðsins á dögunum sagði ráðu­neytið að sé grunur um refsi­verða hátt­­semi Ís­­lendings er­­lendis sé ráðu­neytinu ekki heimilt að hafa af­­skipti af með­­ferð slíkra saka­­mála.

Sigurður segir að það sem komi frá utan­ríkis­ráðu­neytinu nú um málið nú séu bara út­úr­snúningar.

„Ég bað um hjálp,“ segir Sigurður í sam­tali við Frétta­blaðið. „Hringdi í ráðu­neytið og bað um hjálp en fæ hana ekki. Ég er ekkert að grenja neitt meira yfir því, ráðu­neytið veit alveg af þessu en þeir eru bara ekkert að gera.“

Málið horfi þannig við honum að ráðu­neytið virðist ekki hafa neinn á­huga á að að­stoða fjöl­skylduna.

„Þeir hafa akkúrat ekkert gert. Utan­ríkis­ráðu­neytið hefur akkúrat ekkert gert. Þegar að Guð­laugur Þór Þórðar­son var utan­ríkis­ráð­herra þá var manni svarað, þau vildu hjálpa.“

Að­stæður séu nú breyttar frá því að Sigurður hafi á sínum tíma sett sig í sam­band við Guð­laug Þór.

„Sam­skipti mín við Guð­laug Þór eiga sér stað um mánuði eftir að þetta kemur upp og ég spyr hvernig sé best að við snúum okkur í þessu. Þá fórum við bara yfir stöðuna og á þeim tíma var það ekki talið gáfu­legt af hálfu ís­lenskra stjórn­valda að fara skipta sér af málinu.

En það gæti kannski verið gáfu­legt að fara gera það núna vegna þess að núna er verið að brjóta á réttindum ís­lensks ríkis­borgara að mínu viti. Ég er ekkert einn um þá skoðun.“

Það sé fullt af prófessorum og lærðum mönnum sem segi að í þessu máli sé verið að brjóta á mann­réttindum Gylfa Þórs.

„Annað hvort verða þeir að á­kæra manninn eða láta hann lausan. Þeir hafa gert hvorugt.“

Hægt er að lesa alla fréttina hér.

Fleiri fréttir