Leiðarahöfundur Morgunblaðsins, sem ætla má að sé Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins, lýsir yfir áhyggjum af því í leiðara í dag að Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, muni nýta sér ástandið vegna kórónaveirufaraldursins til að misnota vald sitt og þjarma enn frekar að einkabílnum.
Borgarstjóri lýsti því yfir á Twitter að hann ætli sér að taka það upp við sóttvarnarlækni og almannavarnir hvort loka þurfi fyrir bílaumferð á einhverjum götum miðbæjarins. Er það í kjölfar kvartana fólks sem segist ekki geta virt tveggja metra regluna á þröngum gangstéttum.
„Ýmsir hafa lýst áhyggjum af því að undanförnu að stjórnvöld hér og þar í heiminum hyggist nýta kórónuveirufaraldurinn til að auka völd sín og jafnvel knýja fram allt að því einræðisvald,“ skrifar leiðarahöfundur Morgunblaðsins.
„En það er ekki aðeins ríkisvaldið sem hætta er á að nýti sér ófremdarástandið. Hér á landi dúkkaði um helgina upp lítið dæmi um það hvernig sveitarfélög geta fallið í sömu gryfju,“ segir hann og vísar þá í tíst borgarstjóra.
Er því velt up hvort ekki sé um hræsni að ræða hjá borgarstjóra, þar sem borgaryfirvöldi standi fyrir skipulögðum strætósamgöngum, þar sem erfitt sé að virða tveggja metra regluna.
„Efasemdir hljóta að vakna um hversu trúverðugar þær skýringar eru. Má í því sambandi benda á að borgin hefur haldið úti strætósamgöngum þar sem allt að því útilokað er að halda þessum tveggja metra fjarlægðarmörkum. Þetta kann að vera óhjákvæmilegt eins og svo margt annað því að fólk þarf að komast leiðar sinnar, en það er ekki trúverðugt að vilja á sama tíma, með vísun í smitvarnir, loka götum fyrir umferð einkabíla. Væntanlega er fólk best varið í einkabílum um þessar mundir og nær væri nú að borgaryfirvöld styddu við notkun einkabíla en að leggja stein í götu þeirra,“ skrifar leiðarahöfundurinn.
„Hatrið á einkabílnum verður að eiga sér einhver takmörk,“ skrifar hann ennfremur og fullyrðir að götulokanir myndu hafa enn verri áhrif á fyrirtækin á svæðinu.
„Að auki er líklegt að áform borgarstjóra verði til að valda fyrirtækjum í borginni enn meira tjóni en orðið er á sama tíma og þörf er á að styðja við atvinnulíf og störf í borginni, eins og Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, benti á í samtali við mbl.is um helgina. Stjórnmálamenn verða að standast þá freistingu að misnota kórónuveirufaraldurinn málstað sínum til framdráttar, hvort sem þar er um að ræða hættulega valdasókn eða sérviskulega baráttu fyrir einhverjum furðumálum.“
Takk! Mjög eðlilegar ábendingar og áhyggjur - og margar borgir sem hafa lokað fyrir bílaumferð á fjölmörgum götum að undanförnu til að gangandi geti virt 2 metra regluna. Tek upp við Þórólf sóttvarnarlækni og @VidirReynisson hjá almannavörnum eftir helgi.
— [email protected] (@Dagurb) April 25, 2020