Óttar til­nefnir mann ársins: „Sannur Ís­lendingur“

Óttar Guðmundsson læknir fjallar um val á manni ársins í nýjustu bakþönkum sínum í Fréttablaðinu. Hann tilnefnir sjálfur mann ársins og það má kalla valið óvænt.

„Maður ársins 2022 er rútustjórinn sem virti í tvígang að vettugi vegatálma björgunarsveitanna við Vík í Mýrdal. Þetta er sannur Íslendingur sem hlýðir engu og æðir út í snjómugguna á rútunni fullri af erlendum ferðamönnum. Með þessu athæfi veitti hann ferðamönnunum innsýn í íslenskan vetrarveruleika og þjóðarsál. Þessi maður ætti líka að fá frumkvöðlaverðlaun Ferðamálaráðs fyrir nýstárlega landkynningu,“ segir Óttar í bakþönkunum og að það eigi að heiðra „þvergirðingu“ rútubílstjórans, og annarra, að verðleikum.

„Danir vildu um aldir flytja alla Íslendinga á Jótlandsheiðar enda væri landið óbyggilegt. Við getum þakkað þjóðhollu fólki sem hlýðir engum fyrirmælum að Ísland er enn í byggð.“

Fleiri fréttir