Óttar segir erfitt að skipta um hlutverk: Reyndi að kyngja hrokanum

Óttar Guðmundsson læknir segir að það séu mikil viðbrigði að skipta um hlutverk og vera sjúklingur í stað þess að vera læknir. Í bakþönkum dagsins í dag í Fréttablaðinu segir hann frá því að um þessar mundir sé hann í endurhæfingu á sjúkrastofnun og að dagarnir líði „inni í skipulagðari stundaskrá“ og að hann hlýði henni sama hvort um ræðir sund, mat eða fyrirlestur.

„Það eru viðbrigði fyrir lækni að skipta um hlutverk og ímynd og verða þiggjandi heilbrigðisþjónustu en ekki veitandi. Fyrsta vikan var erfiðust og ég var stöðugt á leið heim. Ég reyndi að kyngja hrokanum og setja allt mitt líf og lífsstíl undir mæliker og þiggja ráðleggingar bláókunnugs fólks. Það er afskaplega erfitt og niðurlægjandi að vera rammvilltur læknir og besserwisser í hallærislegum íþróttagalla á leið í sundleikfimi,“ segir Óttar einlægur í pistli sínum.

Hann segir að læknar hræðist að vera sjúklingar og að þeir séu venjulega í afneitun á eigin veikindum.

„Læknir sem fer úr læknasloppnum og klæðist formlausum sjúklingafötum neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig. Erfiðust er sú tilfinning að stjórna ekki lengur eigin lífi,“ segir Óttar og að þessu nýja hlutverki fylgi, eðlilega, sjálfsvorkunn og sjálfhverfa og að lífið snúist að miklu leyti um sjúkdóminn.

„En mestu skiptir að góður sjúklingur er vilja- og gagnrýnislaus, möglar ekki og hlýðir starfsfólkinu í hvívetna. Hann tekur lyf í öllum regnbogans litum með bros á vör. Hann dregur ekkert í efa, trúir öllu og umber allt. Þetta er erfitt hlutskipti fyrir barnabarn Egils Skallagrímssonar í nautsmerkinu,“ segir hann að lokum.

Bakþankana er hægt að lesa hér.

Fleiri fréttir