Óttar Guðmundsson segir í bakþönkum Fréttablaðsins að Íslendingar séu ekki ósvipaðir Sturlu frænda sínum sem var maður skyndilausna en mikill sveimhugi. „Honum fataðist iðulega flugið og framkvæmdin snerist upp í andhverfu sína," skrifar Óttar. „Íslendingar trúa á skyndilausnir á öllum sviðum."
Samkvæmt Óttari einkennist íslenskt samfélag af endurteknum krísum sem þarf að leysa strax. „Allir bíða eftir áður óþekktum náttúruhamförum í Kötlu, Heklu eða jafnvel Hengli. Krónan sveiflast upp og niður eins og fimleikamaður á stökkbretti. Fólk er stöðugt að glíma við óvænt atvik sem þarf að bregðast við," skrifar hann.
„Samfélag sem einkennist af óvæntum uppákomum býður ekki upp á langtímaskipulagningu."
Þá telur Óttar upp nokkur dæmi um hvatvísi sem honum finnst einkenna íslenskt samfélag:
„Smálánafyrirtæki blómstra. Margir leysa skammtímavanda með smáláni sem síðan vex eins og púki á fjósbita. Kóvíð 19 er eins og hver önnur farandplága sem þarf að losa sig við. Hraðbólusetning er eina leiðin. Lítið fer fyrir þeim sem mótmæla bóluefni. Megrunaraðgerðir eiga að vera fljótvirk átaksverkefni. Menn hlaupa eftir töfrakúrum til að leysa vandann fyrir jól.
Magaermi með fjölmörgum ævilöngum fylgikvillum er orðin að skyndilausn vegna offitu. Fjöldi skurðlækna í nágrannalöndunum bjóða upp á þessar aðgerðir án nokkurs undirbúnings. Mikill fjöldi fólks stefnir að miklu ríkidæmi með Bitcoin-æðinu.
Fyrir hrun ætluðu allir að verða ríkir á hlutabréfum.Kannski liggur í þjóðareðlinu að leita stöðugt eftir skyndilausnum. Langtímalausnir eru tímafrekar og venjulega leiðinlegar. Íslendingar hafa frá alda öðli vanist því að þurfa að leysa daglega stórar og smáar krísur.
Hvatvísi er dyggð. Menn muldra ofan í bringuna að þetta reddist allt saman og drífa í hlutunum. Það er smá sveimhuga Sturla í okkur öllum."