Óttar Guðmundsson, geðlæknir, er meðlimur í Félagi Mömmudrengja að eigin sögn. Hann stakk niður penna og skrifaði skoðanapistil í helgarblaði Fréttablaðsins. Þar fer Óttar fögrum orðum um móður sína heitna, „sem skilur allt.“
„Ég hitti Gretti sterka Ásmundsson á dögunum á fundi í Félagi Mömmudrengja (FM). Þetta eru samtök fullorðinna karlmanna sem eru mjög háðir mæðrum sínum. Móðir Grettis, Ásdís á Bjargi, stóð alltaf þétt að baki sonar síns þrátt fyrir öll hans glæpaverk. Formaður félagsins er Oddur Sigurðsson lögmaður sem gerði garðinn frægan í upphafi átjándu aldar. Hann var drykkfelldur ofbeldismaður sem oftar en einu sinni var dæmdur frá ærunni og öllum sínum auðæfum. Sigríður Hákonardóttir móðir hans tók honum fagnandi eftir hvern ósigur og fjármagnaði ný réttarhöld. Sturla Sighvatsson frændi minn er líka í félaginu ásamt Skarphéðni Njálssyni,“ skrifar Óttar.
Óttar segir marga maka kvarta sáran undan sambandi mömmudrengja við móður sína. Þeim finnist samskipti of náin og móðirin allt of afskiptasöm.
„Sumar verða afbrýðisamar og sjá ofsjónum yfir áhrifavaldi og meðvirkni móðurinnar. Þetta getur valdið hatrömmum átökum í samskiptum hjóna. Sannir mömmustrákar taka þessari gagnrýni létt enda kunna þeir vel að meta taumlausa aðdáun móður sinnar,“ skrifar Óttar, sem segist meðlimur Félags Mömmudrengja sökum þess að móðir hans heitin hafi aldrei misst trúna á einkason sinn, þrátt fyrir ýmsar uppákomur.
„Unglingaherbergið stóð alltaf til reiðu eftir misheppnaðar sambúðir eða hjónabönd. Ég held að það sé ákaflega hollt fyrir unga menn að eiga sér meðvirka móður sem dáist að þeim. Góð móðir skilur ekkert í því hvað sonurinn er óheppinn með konur. Heimurinn er fullur af freistingum og vafasömu fólki sem reynir að draga soninn á tálar. Hún veit að sonurinn vill öllum vel þótt honum séu mislagðar hendur. Mamma skilur nefnilega allt!“ skrifar Óttar.