Einungis örfáir miðar eru eftir á ferna tónleika Ingólfs Þórarinssonar, betur þekktur sem Ingó Veðurguð í mars næstkomandi. Í samtali við Vísi segir Ingó að einungis 300 miðar af þeim 4000 sem í boði voru séu óseldir, þrátt fyrir að tónleikarnir hafi hvergi verið auglýstir. Allt stefni í að það verði uppselt.
Tónleikarnir fara fram í Stóra salnum í Háskólabíó föstudaginn 10. mars og laugardaginn 11. mars, en Ingó áætlar að spila á tveimur tónleikum hvort kvöldið fyrir sig.
Athygli vekur að tónleikarnir voru hvergi auglýstir, en Ingó segist sjálfur sjá um alla sölu. Áhugasamir geti nálgast miða með því að senda honum skilaboð á Facebook, en dæmi séu um að einhverjir hafi komið við heima hjá honum, náð í miða og fengið sér kaffibolla í leiðinni.
Ingó hefur lítið sem ekkert spilað opinberlega undanfarin misseri eftir að ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi af hans hendi voru lagðar fram af fjölda kvenna. Ingó hefur ætíð neitað sök í máli og sagt sögurnar ósannar.
Í samtali við Vísi segir Ingó hafa góða tilfinningu fyrir tónleikunum í næsta mánuði. Hann kvíði ekki neinu.
„Fernir tónleikar, flott hljómsveit, flottur salur. Þetta verður gleði og skemmtun og allur fókus á það og ekkert annað,“ segir Ingó.