Ótrúleg saga af því hvernig Selma María fann afa sinn í Bandaríkjunum eftir langa leit: „Alvöru ástarsaga“

Selma María Cassaro fann með aðstoð Facebook, Ancestry og Google afa sinn sem fjölskylda hennar hafði leitað að með hléum allt frá árinu 1986. Amma hennar kynntist honum þegar hún var au-pair í Bandaríkjunum árið 1971 og enduðu þau á að eiga í fallegu ástarsambandi í um sjö mánuði. Þegar hún fór aftur heim komst hún að því að hún var orðin ólétt.

Selma María segir ótrúlega sögu sína í viðtali við Fréttablaðið en hún auglýsti í síðustu viku eftir aðstoð á Facebook við að finna hann. Þar birti hún lista yfir það sem þau vissu um hann, sem var alls ekki mikið.

„Ég hef alltaf vitað af honum og við höfum rætt þetta, mamma og börnin hennar. Við höfum bara heyrt góða hluti um hann frá ömmu og vorum með miklar, eiginlega of miklar væntingar.“ segir Selma María í samtali við Fréttablaðið.

Í viðtalinu segir Selma María frá því að móðurbróðir hennar hafi nýverið, eftir þónokkrar tilraunir móðir hennar, byrjað að leita að honum. Hún segir að án hans hefði þetta líklega aldrei tekist því hann gafst aldrei upp.

Þau hafi loks rekist á mann sem þau töldu hinn rétta. Þau hafi sent honum skilaboð og þær upplýsingar sem þau höfðu. Skyndilega fékk hún svo skilaboð frá manni í sem í stóð: „Já Selma, ég er afi þinn og ég get ekki beðið eftir að hitta fjöl­skylduna mína.“

Viðtalið er hægt að lesa hér í heild sinni.

Myndir sem Selma deildi af afa sínum þegar hún var að auglýsa eftir hjálp á Facebook.
Mynd/Facebook

Fleiri fréttir