Snorri Þrastarson sem vann hetjudáð þegar skotárás var framin í verslunarmiðstöðinni Field’s í fyrra opnar sig um málið, hvernig lífsviðhorf hans hefur breyst og vinasamband sitt við konuna sem hann bjargaði í helgarblaði Fréttablaðsins.
Stærsta breytingin eftir árásina er að hans mati breytt lífsviðhorf.
„Ég finn fyrir gleði í garð lífsins, þakklæti fyrir lífið,“ segir Snorri og útskýrir: „Allt í einu eru þessi smáu vandamál allt öðruvísi. Hlutir eins og að gleyma að kaupa eitthvað úti í búð pirra mig ekki lengur. Maður sér næstum því engin vandamál lengur,“ segir hann.
„Fólk verður pirrað út í minnstu smáhluti. Ef einhver á í smávægilegum vandræðum hugsa ég: Ég redda þér bara, ég hjálpa þér. Ég hjálpaði konu fyrir hálfu ári síðan sem hafði verið skotin. Auðvitað get ég hjálpað þér. En ég segi það þó ekki. Ég segi bara: Minnsta mál.“ segir Snorri í viðtalinu.
Hægt er að lesa viðtalið við Snorra í helgarblaði Fréttablaðsins hér.