Ó­sátt með „nýja“ Cocoa Puffsið: „Þetta voru von­brigði dagsins“

Það ríkir mikil ó­á­nægja með hið nýja CocoaPuffs, en í Face­book hópnum Nammi­tips hafa skapast eld­heitar um­ræður um morgun­kornið vin­sæla.

Þann 24. maí var til­kynnt að Cocoa Puffs, hið sí­vin­­sæla morgun­korn sem hvarf úr hillum ís­­lenskra verslana í árs­byrjun 2021, væri væntan­­legt aftur í verslanir hér á landi á næstu dögum. Þetta vakti mikla gleði hjá Ís­lendingum, enda var morgun­kornið ó­missandi á flestum heimilum í landinu.

En annað hefur komið á daginn og eru alls ekki allir sáttir með hið­ nýja Cocoa Puffs. Einn net­verji á hópnum Nammi­tips skrifar færslu um morgun­kornið og segir: „Þetta voru von­brigði dagsins þetta er svoooooo vont oj­bara vil fá venju­legt cocoa puffs takk fyrir.“

Fjöl­margir hafa svarað færslunni og lýsa yfir von­brigðum sínum með nýja bragðið.

Einn svarar: „Get ég skilað og fengið endur­greitt, er alveg hræði­lega vont !!“

Annar segir: „Við hjónin áttum til það gamla og gerðum saman­burð og þetta er alls ekki eins þetta við­bjóður.“

„Við­bjóður,“ segir annar ó­sáttur net­verji.

Fleiri fréttir