Övar Ragnarsson lýsir endalausum árásum sem hlaðmenn verða fyrir á Reykjavíkurflugvelli af hendi yfirmanna í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Örvar hefur unnið sem hlaðmaður við innanlandsflug í aldarfjórðung. „Ég er sennilega einn af fáum sem starfa við flug án þess að flug sé sérstakt áhugamál mitt,“ skrifar hann. „Þrátt fyrir það hef ég starfað í hlaðdeildinni á Reykjavíkurflugvelli öll þessi ár.“
Hann lýsir því að hann hafi alltaf verið tilbúinn til að mæta ef hans var þörf. „Þetta hlýtur að hafa verið góður vinnustaður úr því að maður hefur starfað þarna þetta lengi í lægsta launaþrepinu innan fluggeirans,“ skrifar hann.
Eitthvað hefur þó breyst því nú segist Örvar mæta skjálfandi til vinnu af ótta yfir því hvaða breytingar kunni að bíða hans. Hann segist færa að jafnaði fimm tonnum úr stað og ganga um 25 kílómetra á einni vakt vegna þess hvernig mönnunin sé þessa dagana.
„Síðastliðið ár hefur einkennst af endalausum árásum yfirmanna, sem snúast um að fækka okkur enn frekar. Í ofanálag vilja þeir bæta á okkur verkefnum, jafnvel þótt við komust ekki með góðu móti yfir það sem við gerum nú þegar,“ skrifar hann.
Nýjasta útspilið er að hans sögn ákvörðun Icelandair að segja upp starfandi trúnaðarmanni og öryggistrúnaðarmanni hlaðmanna, hana Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, sem nokkuð hefur verið fjallað um í fréttum að undanförnu.
„Þetta er komið gott. Ég vil ekkert nema mæta til minnar vinnu og sinna henni af kostgæfni,“ skrifar Örvar og segist skora á Icelandair að bæta ráð sitt.
„Ég skora á Icelandair í fyrsta lagi að draga til baka uppsögn Ólafar Helgu Adolfsdóttur, í öðru lagi að sýna okkur hlaðmönnum á Reykjavíkurflugvelli virðingu og í þriðja lagi að eiga eðlileg samskipti við okkur um að skipuleggja vinnuna þannig að öryggi allra sé í fyrirrúmi,“ skrifar Örvar.