Orðlaus eftir að góðhjartaður jólaálfur skildi eftir umslag með 5.000 í körfunni í Smáralind

„Ég er orðlaus,“ segir Heiða Rut Ingólfsdóttir sem fann óvænt í innkaupakörfunni sinni heilar fimm þúsund krónur í vikunni.

„Ég þurfti að skreppa aðeins í Hagkaup í Smáralind í dag. Ég labbaði hring um búðina og setti nokkra hluti í körfuna. Þegar ég svo er að fara að borga sé ég þetta rauða umslag birtast þegar ég tek upp eina vöruna úr körfunni. Ég hugsaði með mér að það hefði einhver misst það, en þó væri það undarlegt þar sem því virtist hafa verið stungið á milli tveggja hluta,“ segir Heiða Rut í færslu á Facebook-síðu sinni.

Hún segir að hún hafi ekki litið í umslagið fyrr en eftir að hún borgaði en þá hafi henni heldur betur brugðið!

Hér á myndinni að meðan má sjá hvað var í umslaginu.

Umslagið var skilið eftir í körfunni hennar Heiðu Rutar.
Myndir/Heiða Rut Ingólfsdóttir

„Elsku góðhjartaði jólaálfur. Mikið er þetta falleg hugsun og kærleiksrík. Aldrei hef ég vitað slíka góðmennsku og ósérplægni,“ segir Heiða Rut.

Hún segist ætla að nota peninginn til að kaupa gjöf til að setja undir jólatréð í Smáralind og ætli sér svo sjálf að lauma umslagi í innkaupakörfu einhvers annars á aðventunni.

Fleiri fréttir