On­lyFans stjarnan varar við frekari um­fjöllun um kyn­lífs­mynd­bandið: „Eruð þið viss um að ykkur langi í sand­kassa­leik við con­tent creators?“

Konan sem er talin hafa birst í klám­mynd­bandi sem tekið var upp í sjúkra­bíl í hús­næði slökkvi­liðsins við Skógar­hlíð í Reykja­vík svaraði fjöl­miðla­um­fjöllun um málið á Insta­gram-síðu sinni í dag. Kallaði hún þar um um­fjöllunina klám­mynd­bandið „mann­orðsmorð“ og virtist hóta því að svara ís­lenskum fjöl­miðlum í sömu mynt.

Í svokölluðu "story" á Insta­gram-síðu sinni skrifaði konan: „Eruð þið viss um að ykkur (og ykkar starfs­fólki) langi í sand­kassa­leik við "con­tent creators" og/eða "sex wor­kers"?“ og taggaði DV, Hring­braut, Frétta­blaðið og mbl.is.

„Við skulum endi­lega hafa nokkra hluti á hreinu,“ sagði konan í mynd­bandinu. „Meðal annars það að við "sex wor­kers" erum frekar tig­ht sam­fé­lag og við erum með tölu­vert magn af upp­lýsingum um okkar við­skipta­vini, sem eru frekar margir og í stöðum og störfum,“ sagði hún og heldur áfram.

„Þannig að ef þið viljið og ætlið að halda á­fram að taka þátt í mann­orðsmorðinu sem er að eiga sér stað og á sér stað í kringum þetta allt saman bæði gagn­vart "creators" og fleirum. Þá skulið þið prísa ykkur sæl að við gerum ekki slíkt hið sama, því þá væru ansi margir sem myndu missa vinnuna – hátt settir ein­staklingar í alls konar stöðum. Blaða­menn, frétta­menn, þing­menn og alls konar.“

Fleiri fréttir