Daði Freyr og Gagnamagnið fá ekki að stíga á svið eða koma nálægt Eurovision-höllinni í kvöld þótt þau séu öll neikvæð en sveitin fór í sitt síðasta COVID-19 test fyrr í dag.
Hulda Kristín Kolbrúnardóttir, meðlimur Gagnamagnsins, sagði í viðtali við Fréttablaðið að sveitin væri, þrátt fyrir það, peppuð og tilbúin í kvöldið.
„Við vorum í testi, seinasta testinu og við erum öll negatív, fyrir utan Jóa. Það eru mjög góðar fréttir,“ segir Hulda Kristín um stöðuna í dag.
Það er alveg búið að staðfesta að þið getið ekki verið í Eurovision-höllinni í kvöld?
„Já, það er alveg búið að því,“ segir hún.
Og líka ef þið vinnið?
„Já, það er algerlega búið að taka fyrir það.“
Eruði með plan fyrir kvöldið?
„Við ætlum að hafa það kósí upp á hóteli. Vera peppuð í kvöldið,“ segir Hulda Kristín í samtali við Fréttablaðið.
Viðtalið er hægt að lesa í heild sinni hér.