Ólafur Stephensen, framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekenda senti frá sér færslu á Facebook síðu sinni í dag, þar sem hann gagnrýnir Ólaf Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS, fyrir að hafa ekki skilað af sér heiðursnafnbótinni sem kjörræðismaður Rússlands á Íslandi.
Í Fréttablaðinu í dag var viðtal við þá Ólaf Ágúst og Einar Einarsson, rekstrarstjóra Íseyjar hjá MS, varðandi að KS og MS hafi ekki rift samningum um sölu á vörum sem fyrirtækin framleiða til Rússlands, vegna innrásarinnar í Úkraínu.
„Við höfum verið að skoða þessi mál og fylgst með en ekki tekið neina ákvörðun,“ segir Einar í samtalið við Fréttablaðið, spurður um hvort til standi að rifta samningum við Rússa.
Ólafur Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS, varð kjörræðismaður Rússlands á Íslandi árið 2014. Í viðtali við héraðsmiðilinn Feyki það ár taldi hann að nafnbótin ætti eftir að nýtast honum vel í viðskiptum sem hann hefði farið fyrir í Rússlandi en hann hafði verið í forsvari fyrir kjöt- og fisksölu þar í landi.
Í færslunni á Facebook bendir Ólafur Stephensen á það að Ólafur Ágúst sé eini heiðurskonsúll Rússlands á Íslandi. „Ekki vera eins og Ágúst,“ segir hann meðal annars. Hann segir einnig að við eigum að sýna Rússum hversu mikla andstyggð við höfum á gjörðum þeirra, „nema náttúrlega að okkur finnist allt í lagi með það sem Rússar eru að gera Úkraínumönnum og höfum ekki einu sinni hugleitt að það sé eitthvað rangt við það.“
Ólafur hafði áður gagnrýnt að stjórnvöld höfðu ekki vísað rússneska sendiherranum úr landi, en fréttina má sjá hér.