Ólafur fékk ekki leigu­bíl: Skráði sig á skutlara­síðuna og var kominn heim á korteri

Fólk virðist vera í vand­ræðum með að fá leigu­bíl þessa dagana, en margir hafa nýtt sér sam­fé­lags­miðla til þess að tjá sig um þennan skort.

Veitingamaðurinn Ólafur Örn Ólafs­son vakti at­hygli á þessu á Twitter síðu sinni og hefur færslan vakið mikla at­hygli, en 141 manns hafa sett like á hana. Greini­lega margir sem tengja við þennan vanda.

Í færslunni segir hann: „Reyndi að fá leigara heim úr vinnunni í kvöld, en fékk aldrei svar, þrátt fyrir að hafa reynt lengi. Skráði mig á skutlara á FB í Fyrsta sinn og fékk bíl og var kominn heim á innan við korteri - þetta leigu­bíla­kerfi hér þarf a­menni­lega yfir­halningu imo.“

Kristján Valur svara: „Er þetta svipað eins og að fara á kassa í stór­markaði og vera neitað um af­greiðslu..."

Sem Twitter að­gangurinn Bíttu í miðjuna svarar: „Nei, þetta er eins og að mæta á kassa­röðina og það er enginn að af­greiða.“

Emil Ás­gríms­son segir: „Ég kom á BSÍ á mið­nætti með flybus á­samt 20 túr­istum og þar var enginn leigu­bíll og ég þurfti að bíða í símanum í korter. Frekar steikt fyrstu kynni af Reykja­vík fyrir greyið fólkið.“

Eyjólfur Kol­beins minnist þá á Uber: „Vona að þú sért ekki að leggja til að fá Uber......það myndi sko skemma fyrir!!“

Fleiri fréttir