Ólafur Darri segir brottrekstur úr Borgarleikhúsinu hafa verið vakningu

Ólafur Darri Ólafsson gerir upp fortíð sína og ræðir fjármálaörðugleika sína í hlaðvarpinu Leitin að peningum sem Gunnar Dofri Ólafsson stýrir fyrir Umboðsmann skuldara. Í þættinum, sem er hægt að hlusta á hér að neðan, segir hann frá því hvernig hægt er að lifa af listinni en Ólafur Darri er í dag einn vinsælasti leikari Íslendinga, bæði hér heima og erlendis.

Ólafur Darri segir frá því í hlaðvarpinu að áður en honum fór að ganga vel þá gekk hann í gegnum talsverða fjárhagsörðugleika.

„Ég var tiltölulega snemma kominn í tómt tjón í fjármálum. Ég lifði langt um efni fram og skuldaði mikið og á mörgum stöðum. Ég man mjög gaumgæfilega þessa endalausu tilfinningu, þetta nagandi samviskubit sem fylgdi því að eiga ekki fyrir reikningunum,“ sagði Ólafur Darri í viðtalinu og sagði frá því að þegar hann var í MR hefði verið hringt í pabba hans því hann skuldaði í 15 þúsund í sjoppunni.

Hann segist enn fá kvíðahnút yfir því að hugsa um þennan tíma.

Þátturinn er hér að neðan.

Fleiri fréttir