Vilhjálmur Birgisson, formaður starfgreinasambandsins segir það rangt að Efling hafi ekki verið upplýst um nýjan skammtímakjarasamning. Þetta kemur fram í Bítinu á Bylgjunni.
„Jú það er algjörlega kolrangt, því það er skylda mín sem formaður að upplýsa aðildarfélög um samninga og ég gerði það við Eflingu,“ sagði Vilhjálmur.
Í gær birti Vilhjálmur pistil á Facebook þar sem hann segist hafa verið stunginn í bakið af fólki sem hann taldi vera góða vini sína, með því að segja að hann hafi nánast framið glæp með þessum samningi. Hann benti á að það hafi verið Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sem hafi gagnrýnt harðlega kjarasamninginn.
„Því miður, þegar viðræðurnar eru á viðkvæmu stigi, þá er þessu lekið í fjölmiðla, til þess eins að skemma og afvegaleiða það sem við vorum að gera,“ segir Vilhjálmur í Bítínu.
Sólveigu var boðið að koma í Bítið og ræða við Vilhjálm, en að sögn þáttastjórnenda neitaði hún að koma þar sem hún taldi sig ekki þekkja samninginn nægjanlega vel. Vilhjálmur segir að þarna fari ekki saman hljóð og mynd, en hann segir að Sólveig hafi tjáð sig um samninginn annars staðar.
„Það er í mínum huga óheiðarlegt og maður verður dapur,“ segir Vilhjálmur.
Aðspurður um samband hans, Sólveigar og Ragnars Þórs, formanns VR, segir hann að allt samstarf þurfi að vera byggt á trausti og trúverðugleika. Vilhjálmur, Sólveig og Ragnar ætluðu áður saman í framboð til forystu Alþýðusambands Íslands.
„Allt samstarf milli aðila þarf að byggjast á heiðarleika og trúverðugleika. Þegar þú upplifir það að slíkt hefur beðið hnekki, þá að sjálfsögðu verða breytingar,“ segir Vilhjálmur.