Eigendur þriggja skemmtistaða von á kæru vegna þess að dyraverðir þeirra voru ekki með réttindi eða það voru of fáir dyraverðir við vinnu í gær og í nótt. Það kemur fram í dagbók lögreglunnar í dag.
Í gær kom fram í dagbókini að nokkrir skemmtistaðir ættu von á kæru vegna þess að ekki hefðu verið dyraverðir við störf eða að þeir hefðu ekki verið með réttindi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með sérstakt eftirlit í miðborginni um helgina á veitingahúsum vegna dyravarða.
Í dagbók lögreglunnar kemur einnig fram að þónokkur ölvun hafi verið í miðborginni um helgina en fjöldi einstaklinga þurfti á aðstoð lögreglu að halda vegna ölvunar. Einhverjir gistu í fangaklefa á meðan öðrum var komið heim.