Vísað var til áttunda kapítula Mannhelgisbálks Jónsbókar í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á dögunum, en þar kemur fram að „ef óðr maðr brýst ór böndum ok verðr hann manns bani, þá skal bæta af fé hans ... ef til er ... En ef óðr maðr særir mann, þá skal arfi uppi láta vera sárbætr ok læknisfé af fé hins óða.“
Í dómnum var karlmaður á sjötugsaldri sýknaður af ákæru um tilraun til manndráps þegar hann skaut á feðga í kyrrstæðum bíl fyrir utan leikskóla við Miðvang í Hafnarfirði í júní á þessu ári. Sonurinn var rúmlega sex ára þegar árásin átti sér stað. Fréttablaðið greinir frá.
Þó ákvarðaði héraðsdómur að maðurinn skyldi vera vistaður á viðeigandi stofnun, en sannað þótti að hann hafi framið verknaðinn. Þá þarf hann að sæta upptöku á 22 kalíbera riffli, sem hann notaði í árásinni.
Manninum er einnig gert að greiða brotaþolunum tveimur samtals 1.7 milljónir króna. Við þá ákvörðun vísaði dómari til áttunda kapítula Mannhelgisbálks Jónsbókar, sem er frá þrettándu öld, um að brotaþolar eigi rétt á miskabótum.
Atvikið átti sér stað þann 22. júní á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa á svölum íbúðar sinnar á þriðju hæð miðað á bílinn sem feðgarnir voru í og hleypt af tveimur skotum.
Fyrra skotið fór í gegnum afturhlera bifreiðarinnar og stöðvaðist í baki farþegasætisins þar sem drengurinn stóð, en seinna skotið fór ofarlega í vinstri afturhurð bifreiðarinnar þannig að bílrúðan brotnaði og rigndi glerbrotum yfir manninn sem sat í skotstefnu kúlunnar í ökumannssæti bifreiðarinnar.
Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi verið í mjög slæmi ástandi þegar verknaðurinn var framinn og hafi framburður hans því verið mjög ruglingslegur.
Í lögregluskýrslu sagði maðurinn til dæmis að fólk sem hefði ekki viljað honum gott hefði komið að íbúð hans um nótt til að lýsa á hana „eins og hjá Helga Seljan“. Hann hefði talið að maðurinn í bílnum væri glæpamaður og hann hefði þurft að stöðva hann áður en lögreglan kæmi á vettvang.
Í framburði sínum fyrir dómi sagðist maðurinn ekki hafa séð barn í bílnum og sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir hvaða afleiðingar háttsemi hans gæti haft né hugsað út í það.