Odd­vitar í borginni segja niður­stöður kosninga á­kall um breytingar

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og jafnframt stærsta flokksins í borginni, segir að staða flokks hennar sé góð og að hún muni hefja umræður við aðra oddvita á næstu dögum um myndun nýs meirihluta í borginni.

„Við metum stöðuna góða,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og að næstu dagar fari í það að ræða við aðra oddvita. Nánar er rætt við Hildi á vef Fréttablaðsins.

Hún segir að niðurstöður kosninganna í Reykjavík séu skýrt ákall um breytingar.

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins tekur undir það og segir að hann ætli að meta daginn í að fara yfir stöðu mála og að hann muni ræða við aðra oddvita með óformlegum hætti í dag.

„Við spurðum fyrir þessar kosningar hvort það væri ekki kominn tími á breytingar og kjós­endur hafa svarað því með af­dráttar­lausum hætti,“ segir Einar í viðtali við Fréttablaðið.

Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar segir það liggja skýrt fyrir að það verði ekki sami meirihluti í Reykjavík. Hann segir að það gildi enga reglur um meirihlutaviðræður eins og eftir Alþingiskosningar og gerir ráð fyrir því að nýr meirihluti verði myndaður í kringum þau málefni sem þarf að setja á oddinn.

Fleiri fréttir