Hólmfríður Árnadóttir, sem býður sig fram í efsta sæti á lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, fer hörðum orðum um Ríkissjónvarpið í færslu á Facebook og segir þá ekki vinna vinnuna sína.
Í kvöldfréttum RÚV í gær fjallað um að þeir Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður, gæfu kost á sér í efsta sæti á lista flokksins í kjördæminu. Ekki var minnst á Hólmfríði og hún segir:
„Ég er enn að bjóða mig fram! Ég er greinilegra vinsælli í kjördæminu en hjá fjölmiðlum, öll sem ég tala við vita vel af mér og mínu framboði, gaman að því. Bið enn og aftur um að fréttamenn vinni sína vinnu, ég veit þeir geta það, og að komið sé eins fram við ALLA frambjóðendur,“ segir hún í færslu á Facebook. Segir hún þetta vitleysu hjá RÚV og hvetur hún stuðningsmenn sína að deila.
„Þið megið líka deila þessari vitleysu RÚV með minni leiðréttingu fyrst við þurfum að vinna þeirra vinnu.“
Var það tekið fram í fréttum kl. 22 að hún væri í framboði.
Hólmfríður, sem er skólastjóri í Sandgerði, sendi fjölmiðlum tilkynningu í nóvember síðastliðnum um framboð sitt. Margir taka undir gagnrýni hennar, þar á meðal þingmennirnir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem og borgaroddvitinn Líf Magneudóttir.
Hólmfríður segir þetta vera í þriðja skipti sem ekki sé minnst á hana.
Margir stuðningsmenn hennar eru hneykslaðir á því að ekki hafi verið minnst á hana.
„Óþolandi slæm vinnubrögð hjá fjölmiðlum, í kvöld hjá RÚV. Mætti halda að þeim finnist óþarfa að kona bjóða sig fram, þar sem karlarnir ætla að slást,“ segir einn stuðningsmaður.
Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður segir: „Þessi frétt í RÚV fréttum í kvöld var með ólíkindum og þú átt að senda inn kvörtun.“ Hólmfríður segir að það hafi verið gert.
„Voðalega var leiðréttingin í 10 fréttum lágstemmd. Mér finnst að rúv ætti að skammast sín og endurflytja fréttina með réttum upplýsingum,“ segir annar og segist Hólmfríður vera sammála. Þá segir einn: „Ömurleg og skammarleg vinnubrögð.“