Örn Árna orðinn leiður á spreyinu: „En spreyið í dag er bara skemmdar­verk“

Örn Árna­son, leikari, kvartar yfir því í hverfa­hóp fyrir íbúa Breið­holts að á sama tíma og vorið sé í lofti þá séu sprey­brúsar komnir á loft sem veki ekki sömu gleði. Hann spyr hvort ekki sé mál að linni og bendir á að kostnaðurinn við að þrífa spreyið geti hlaupið á tugum eða hundruðum þúsunda.

Örn segist skilja að í „gamla daga“ hafi þetta verið á­kveðið „sta­tement“, að merkja sér ein­hver flöt en segir að í dag séu til svo margir miðlar þar sem fólk getur tjáð sig að þessi leið sé mögu­lega orðin ó­þörf.

„Í dag eru til ótal miðlar, insta­gram, snapp, tiktok að ég tali nú ekki um feis­búkk þar sem hægt væri að koma sér á fram­færi ef þú hefur ein­hverju að miðla!. En spreyið í dag er bara skemmdar­verk og kostar hús­eig­endur þúsundir og stundum hundruðir þúsunda að lag­færa. Getum við ekki tekið höndum saman um að láta svona eiga sig?. Við mótum um­hverfið og þegar svona á­rásir eru ár eftir ár, þá gefast menn stundum upp og láta í minni pokann og þá er ekki skrýtið að menn grípi í "gettó" líkinguna. Eina ráðið virðist því vera að mála þessa skratta­kolla út í horn og mála yfir þetta aftur og aftur. Er ekki mál að linni?,“ segir Örn í færslunni.

Fjöl­margir skrifa at­huga­semdir við færsluna og leggja til að í stað hvítra veggja sé lista­mönnum boðið að búa til list sína á þá. Með því væri mögu­lega hægt að koma í veg fyrir „tögg“ og önnur merki.

Fleiri fréttir