Ný forysta kynnir nýtt nafn og merki

Forysta Samfylkingarinnar hefur verið endurnýjuð á landsfundi flokksins núna um helgina. Kristrún Frostadóttir tók við sem formaður, Guðmundur Árni Stefánsson sem varaformaður, Arna Lára Jónsdóttir sem ritari og Jón Grétar Þórisson sem gjaldkeri. Þá var Guðmundur Ari Sigurjónsson við sem nýr formaður framkvæmdastjórnar.

Þá var í dag einnig tilkynnt um það að nafni flokksins hafi verið breytt og að merki flokksins verði rós, sem er alþjóðlegt merki jafnaðarfólks.

Kristrún Frostadóttir, nýkjörinn formaður flokksins, fagnar þessum breytingum: „Ég er ánægð með þessar ákvarðanir landsfundar. Með því að taka rósina upp sem merki styrkjum við ímynd okkar sem jafnaðarflokks. Og rósin fer vel saman við áherslur mínar um að leggja ofuráherslu á kjarnamál jafnaðarstefnunnar.“

Fleiri fréttir