Ný sprunga hefur nú opnast í Geldingadölum en um Veðurstofa Íslands fékk tilkynningar frá flugmönnum og flugturni um sprunguna rétt um hádegið og var hún staðfest á vefmyndavél RÚV.
Að sögn náttúruvársérfræðinga er um að ræða 500 metra langa sprungu sem er um 500 metra norðaustan af gosstöðvunum í Geldingadölum.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar með sérsveitarmenn um borð hafa nú verið kallaðar út til að aðstoða við rýmingu en allt svæðið verður rýmt þar til frekari upplýsingar um sprunguna liggja fyrir.
Sprungan er ekki talin ógna byggð eða mannvirkjum en fólk sem fer á svæðið gæti verið í hættu ef það fer of nálægt. +
Vefmyndavél Ríkisútvarpsins er nú beint að sprungunni en hægt er að horfa í beinni hér fyrir neðan.