Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður, segir kímna sögu af sjálfum sér í færslu sem birtist á Facebook í kvöld. Hann var staddur í flugi frá Osló, en þar var norðmaður sem gerði honum lífið leitt.
„Það getur verið snúið að vera í flugvél í háloftunum. Maður velur sér ekki sessunauta og erfitt er að forða sér undan óþægindum. Því er margt bannað í flugvélum, eins og að reykja og vera með dólgshátt. En ég komst að því í flugi frá Osló að það þyrfti að banna fleira.
Við hliðina á mér sat norðmaður um fertugt, tágrannur og borðaði auðvitað eitthvert grænmetisdrasl sem hann skolaði niður með náttúrulegum heilsudrykk.“
Brynjar segist þó hafa getað lifað við „grænmetisdraslið“ og heilsudrykkinn en það var annað sem fór meira í taugarnar á honum, sem hann segir að hafi gert flugferðina að hreinu helvíti.
„Ég gat svo sem lifað við það. Hann fór síðan að horfa á norskan þátt í fartölvunni sem virðist hafa verið gamanþáttur, því maðurinn skellti upp úr fyrirvaralaust með reglulegu millibili svo hlátrasköllin heyrðust svo gott sem um alla vél. Fyrir taugabilaðan og viðkvæman mann, sem þolir illa óvænt áreiti, var flugferðin orðin hreint helvíti. Það er erfitt að sitja löngum stundum og reyna að undirbúa sig undir næstu hlátrasköll.“
Þá segir Brynjar frá því hvernig hann leysti málið, en það var eflaust auðveldara en honum hafði grunað.
„Vélin var yfirfull og því ekkert laust sæti í annars staðar og ég gat ekki setið á klósettinu alla ferðina til að forðast manninn. Yfir Færeyjum var ég algerlega búinn á líkama og sál og farinn að leita í öllum skápum að fallhlíf. Á endanum sagði ég manninum að hætta þessu glápi og fá sér sælgæti eða eitthvað annað óhollt. Þetta væru tilmæli frá dómsmálaráðherra, sem ég væri í góðu sambandi við. Hann hlýddi strax enda mun hann hafa verið í norska hernum á yngri árum.“
Færsla Brynjars endar síðan á þessum orðum:
„Mér leikur forvitni á að vita hvar hægt er að finna svona fyndinn norskan skemmtiþátt. Dettur helst í hug að þetta hafi verið gömul upptaka með Fleksnes.“