Hallgrímur Helgason, rithöfundur, segir það svakalegt að vita þess að njósnað hafi verið um sig í kjölfar greinar sem hann birti um Samherja fyrir jólin 2019 í kjölfar umfjöllunar Kveiks og Stundarinnar um meinta mútustarfsemi Samherja í Namibíu. Greint er frá því í Stundinni í dag að í kjölfar greinar Hallgríms hafi Páll Steingrímsson, skiptstjóri, átt að birta grein þar sem fjallað væri um Teslu í innkeyrslu Hallgríms.
Páll átti eftir að fá „staðfest að Hallgrímur eigi tesluna en ekki nágranni hans, er að bíða eftir svari um það“. Það sagðist Þorbjörn Þórðarson, almannatengill Samherja, geta gert, verandi með aðgang að fasteigna- og bifreiðaskrá. Eitthvað sem Páli þótti ánægjulegt og tveggja broskalla virði: „Glæsilegt :D þú ert rétti maðurinn fyrir okkur hjá Samherja :D“
Í ljós kom að Hallgrímur átti ekki Tesluna, heldur nágranni hans, og ekkert varð af greininni.
Hallgrímur segir í færslu á Facebook í morgun að Samherji seilist langt í baráttu sinni. „Spjótunum er sem fyrr beint að Helga Seljan, og svakalegt að lesa um illviljann sem hér er afhjúpaður. En þarna kemur líka fram að njósnað hafi verið um heimili mitt vegna greinar sem ég skrifaði í desember 2019, þegar rafmagnsleysi skók byggðirnar fyrir norðan. Greinin sem ég skrifaði heitir reyndar ekki "Skilið þýfinu" eins og sagt er þarna heldur "Kaldir ofnar á Dalvík", og var nánast líkamlegt viðbragð við ástandinu á aðventunni 2019 þegar fólk hirðist í köldum og ljóslausum húsum í þessu höfuðvígi Samherja. Var að reyna að setja hlutina í samhengi.“
Hallgrímur segir þetta klassískar aðferðir til að hann tortryggilegan. „Í njósnum sínum fundu þeir semsagt Teslu-bifreið í innkeyrslunni okkar og hugðust búa til hneyksli: Maður á listamannalaunum á Teslu! Þetta fellur þó fljótt þegar í ljós kemur að það eru nágrannarnir okkar í tvíbýlishúsinu, fólkið uppi, sem á Tesluna. En þetta lýsir sjúklegu hugarfari lítilla karla sem vinna óvart hjá stærsta og voldugasta fyrirtæki landsins sem nýtur einstakrar velvildar rikisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.“
Hallgrímur setur þetta í samhengi við Bláu höndina. „Forsætisráðherra hefur aldrei tjáð sig af neinu viti, hvað þá krítískt, um sakamál Samherja, hvort sem þau skekja samfélögin í Namibíu, Noregi eða (og það sem manni sárnar hvað verst) í Færeyjum. Tilfinningin er sú að hér sé ekkert verið að rannsaka hin hrikalegu mál fyrirtækisins. Og það er mjög vond tilfinning. Það er því ekki furða að Samherjamenn telji sig komast upp með hvað sem er, eins og sést af þessum fréttum. Og forsætisráðherra mun heldur ekki tjá sig krítískt nú, eftir að skæruliðadeildin hefur verið afhjúpuð. Þess vegna skulum við bara kalla stjórnina Samherjastjórnina.“