Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti Forseta Íslands, segir á samfélagsmiðlum í dag að hádegisverður sé erfiðasta máltíð dagsins.
„Hvað á maður að eiginlega borða í hádeginu? 36 ár á lífi og ég er enn ekki búin að læra hvernig á að tækla hádegismat,“ segir Una.
Aðrir taka undir með Unu og segja að eftir 40 ár séu þau enn á sama stað. Þá er henni bent á að þess vegna sé „bröns“ til eða hádegisdögurður sem er bland af hádegisverði og morgunmat sem er í boði á mörgum veitingastöðum um helgar.
Þá eru aðrir sem segjast einfaldlega elda of mikið í kvöldmat og borða afganga.
Hádegisverður er erfiðasta máltíð dagsins. Hvað á maður að eiginlega borða í hádeginu? 36 ár á lífi og ég er enn ekki búin að læra hvernig á að tækla hádegismat.
— Una Sighvatsdóttir (@unasighvats) October 16, 2021
Ekki örvænta. Er að detta í 40 hringi í kringum sólina og ég er ekki búin að tækla þetta vandamál heldur.
— General_Poopings 🏴☠️ (@GeneralPoopings) October 16, 2021
Þess vegna er bröns um helgar.
— Sverrir (@sverrirbo) October 16, 2021
Þess vegna er bröns um helgar.
— Sverrir (@sverrirbo) October 16, 2021
Hér að neðan má sjá nokkrar hugmyndir um hádegismat af vef Fréttablaðsins.