Mynd­band sýnir ras­isma ís­lensks ung­mennis í garð út­lenskrar konu

Mynd­band sem virðist sýna ís­lenskt ung­menni kalla konu af er­lendu bergi brotin kóróna­vírusinn og Hring­braut hefur undir höndum gengur nú manna á milli á sam­fé­lags­miðlum. Það birtist meðal annars á sam­fé­lags­miðlinum TikTok og er í dreifingu á Face­book hópnum BeautyTips.

And­lit stráksins er falið með svo­kölluðum bros­kalli. „Þú ert kóróna­vírusinn!“ kallar pilturinn í­trekað á konuna á ensku. „Nei, ég er góða fólkið. Ég er að yfir­gefa Ís­land....“ svarar konan honum þá. Andlit hennar er ekki falið.

Ekki liggja frekari upp­lýsingar fyrir um hver það er sem tók mynd­bandið eða hver það er sem á að­ganginn á TikTok þar sem það er birt. Þar er meðal annars merkt myllumerkin #kórónavírusinn og #Kína. Notandinn kemur fram undir nafn­leynd með not­enda­nafnið Mhm_hmm.

Al­þjóða­heil­brigðis­stofnunin gaf út til­mæli í febrúar síðast­liðnum um nafn­gift veirunnar. Þar var hún nefnd SARS-CoV-2 og veldur hinum svokallaða CO­VID-19 sjúk­dómi. Í til­mælum stofnunarinnar er stranglega tekið fram að ekki skuli notast við staðar­heiti eða landa­heiti við nafn­giftir veirunnar, til að forða því að fólk verði fyrir aðkasti vegna hennar.

Á BeautyTips.
Facebook/Skjáskot

Fleiri fréttir