Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segir það grafalvarlegt þegar menn brjóti lög og flytji meira eldsneyti um borð í bílum sínum en lög kveða á um. Hann segir Íslandsmet hafa verið slegið í bensíndælingum í síðustu viku. Fréttablaðið greindi frá þessu.
Tilefnið er myndband sem birt var á samfélagsmiðlinum TikTok í síðustu viku þar sem má sjá vörubílstjóra fylla risastóra plastgáma inni í vörubíl af dísel. Í ummælum við myndbandið kveðst hann hafa greitt 9.000 Bandaríkjadollara fyrir magnið, eða því sem nemur rúmum 1,3 milljónum króna. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Vörubílstjórinn því rúma 4060 lítra af díseli. Þórður segir ljóst að það sé ólöglegt að ferðast með svo mikið magn af eldsneyti og segir málið grafalvarlegt.
„Ég sá þetta,“ segir Þórður sem segir um að ræða stöð Orkunnar að Fitjum í Reykjanesbæ. „Hann er með tólf kör inni í flutningabílnum sínum og er að fylla á þau, sem er náttúrulega kolólöglegt,“ segir Þórður.
Allajafna megi ekki keyra með meira en rúmlega 900 lítra af eldsneyti. Þórður segir spurður að það hafi aldrei áður farið eins mikið út af eldsneyti og dagana fyrir verkfall olíubílstjóra á vegum Eflingar í síðustu viku.
„Þetta er fyrsta áhlaupið, þetta er á þriðjudeginum fyrir verkfall. Þá fór út eldsneyti í magni sem hefur aldrei sést áður í Íslandssögunni. Ég er nokkuð viss um að það hafi verið slegið Íslandsmet í útstreymi á eldsneytisstöðvunum á höfuðborgarsvæðinu þennan dag.“
Í athugasemdunum við myndbandið lætur fólk hann heyra það fyrir að vera hamstra bensíni. Maðurinn ehfur verið duglegur að svara fyrir sig og hefur beðið fólk um að vera ekki öfundsjúkt. Þá sagðist hann einnig vera vond manneskja.
@arczik31 #truckdriver #islandia #iceland #jobs #diesel ♬ dźwięk oryginalny - filmserial.pl