Í hverfishópnum Vesturbærinn vakti mikla lukku þegar einstaklingur birti mynd af manneskju sem hafði tekið sig til og farið með skóflu að moka snjó af gangbrautinni yfir Ánanaust.
Manneskjan sem deilir myndinni leggur til að þessi einstaklingur verði valinn Vesturbæingur vikunnar og hrósar honum fyrir framtakið.
Undir myndinni má sjá aðra Vesturbæinga hrósa honum fyrir afrekið og minnast á að ekki allar hetjur klæðist skikkjum.
Annar einstaklingur lagði til að ung stúlka sem var að hreinsa upp flugeldarusl á Ægissíðu væri um leið tilnefnd.