Haukur Bragason setti nýverið færslu á Twitter þar sem hann vandar eiganda bíls ekki kveðjurnar. Bíllinn var lagður hálfur upp á gangstétt svo varla væri hægt að labba framhjá honum.
„Ég óska öllum gleðilegra páska nema manninum sem skilur ekki að bíllinn hans endar ekki þar sem dekkin nema við gangstéttarkantinn heldur við dráttarkrókinn sem skagar inn fyrir 54% af breidd gangstéttarinnar,“ skrifar hann á Twitter og segir svo að lokum: „Vonandi fékk hann hræðilegan málshátt í páskaegginu sínu.“
Fólkið á Twitter var fljótt að svara þessu og komu fjölmörg skemmtileg svör.
Heidrun Arna segir: „Úffff algjört óþol fyrir þessu. Hjólastólar, barnavagnar, börn á hjólum, blindir og jú sjúkraflutningafólk þar að nota gangstéttir (ásamt öllum hinum)....“
Oli Jens segir að þetta sé ólöglegt í mörgum löndum, „en ekki hér“.
Þá segir Egill Óskarsson kaldhæðin: „Hehe vælið maður þetta er svo langur bíll að annars væri hann út á götu væri það betra. Já. Það væri betra. Eða bara sleppa því að leggja upp við gangstétt.“
Ég óska öllum gleðilegra páska nema manninum sem skilur ekki að bíllinn hans endar ekki þar sem dekkin nema við gangstéttarkantinn heldur við dráttarkrókinn sem skagar inn fyrir 54% af breidd gangstéttarinnar. Vonandi fékk hann hræðilegan málshátt í páskaegginu sínu. pic.twitter.com/WZU5IWd88X
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) April 17, 2022