Mynd dagsins: „Þú meinar Einar returns“

Natan Kol­beins­son er með mynd dagsins þar sem hann endur­vekur Þú meinar Einar kosninga­slag­orðið sem Einar Skúla­son notaði er hann bauð sig fram fyrir Fram­sókn fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar 2010.

Skúli Jóhanns­son, faðir Einars Skúla­sonar hengdi þá upp borða á svalirnar hjá sér í Banka­strætinu með slag­orðinu „Þú meinar Einar.“ Borðinn vakti mikla at­hygli á sínum tíma.

Nú er Einar Þor­steins­son odd­viti Fram­sóknar­manna í borginni og klippti Natan þessa skemmti­lega mynd saman þar sem hann setur Einar í stað Einars.

Fleiri fréttir