Mynd dagsins: „Þetta eru vissulega 500 grömm af gulrót“

Agnes Reynisdóttir pantaði sér matvörur heim að dyrum nú á dögunum. Meðal þess sem Agnes keypti var 500 gramma poki af gulrótum. Hún virðist þó ekki hafa fengið nema eina gulrót en hún vekur á athygli á þessu inni á Facebook hópnum Verslun á netinu, sem vakið hefur mikla athygli. Mynd dagsins er af gulrót Agnesar.

„Það er gott að geta pantað í matinn á netinu. Ég pantaði 500 gr af gulrótum. Þetta eru vissulega 500 gr af gulrót..“ skrifar Agnes. Óhætt er að fullyrða að netverjar liggi ekki á skoðunum sínum vegna málsins.

„Þú verður þó alla vega fljótari að skræla eina stóra en margar litlar,“ skrifar Davíð Sigurþórsson og fær sjö læk. Sjálf hefur Agnes fengið um 380 viðbrögð við færslunni.

„Liggur við að þetta sé líkara appelsínugulri gúrku en gulrót,“ skrifar Dýrleif Jónsdóttir. Eva Berglind Jónsdóttir deilir svipaðri sögu af eigin innkaupum:

„Ég hló mig máttlausa þegar ég pantaði rauðlauk á heimkaup og það kom þessi agnarsmái rauðlaukur, hann minnti frekar á gott vínber haha.“

Fleiri fréttir