Mynd dagsins: „Þegar þú ert búinn að kjaraviðræða svo mikið að þú ert orðinn eins og ofn á litinn“

Sjónvarps- og fréttakonan geðþekka María Sigrún Hilmarsdóttir birti athyglisverða mynd á samfélagsmiðlinum Twitter í dag, sem hefur hlotið talsverða athygli netverja. Myndin er af Halldóri Benjamín Þorbergssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, sem tekin var í húsakynnum ríkissáttasemjara um helgina.

„Þegar þú ert búinn að kjaraviðræða svo mikið að þú ert orðinn eins og ofn á litinn,“ skrifar María Sigrún við myndina af Halldóri Benjamín, sem virðist ansi fölur eftir viðræður síðustu daga.

Þá segist hún vona að Halldór komist með fjölskyldunni til Tenerife í janúar.

Fleiri fréttir