Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar birti krúttlega mynd á Facebook frá baráttufundi Eflingar í dag. Þar mætti ungur stuðningsmaður Eflingar til að styðja kjarabaráttuna.
„Milana kom með mömmu sinni á baráttufund Eflingar í dag. Ég passaði Milönu á Nóaborg þegar hún var lítil stelpa. Nú er hún orðin stór 9 ára skólastelpa. Það var frábært að hitta hana,“ segir Sólveig á Facebook.
„Áfram Eflingar-mömmur og Eflingar-börn. Ómissandi og magnað fólk sem á það skilið að samfélagið viðurkenni mikilvægi þeirra og bjóði þeim gott líf og mannsæmandi kjör.“