Mynd dagsins: Óvenjuleg sjón í fjölbýlishúsi í Breiðholti

Félaga í Facebook-hópnum Íbúðasamtökunum Betra Breiðholti þótti nóg um þegar hann sá hve mörgum innkaupakerrum frá Nettó var búið að stafla við innganginn á fjölbýlishúsi.

„Ég veit að stundum tekur fólk innkaupakerrurnar með sér heim að dyrum,“ skrifaði hann. „Mér finnst það ekki í lagi. Verslunin á þessa hluti. Ég tók þessar myndir við fjölbýlishús og þar eru hvorki meira né minna en 26 innkaupakerrur úr Nettó. Finnst ykkur þetta bara allt í lagi?“

Ekki eru allir í hópnum á sama máli um það hvort þetta sé í lagi. Sumir telja þetta hreinan og beinan þjófnað, aðrir sómasamlegt fyrirkomulag milli Nettó og eldri borgara þar sem kerrurnar séu jafnan sóttar með reglulegu millibili.

Fleiri fréttir