Mynd dagsins: Ósyndur ferðamaður fékk ekki að snorkla í Silfru og gaf ferðinni eina stjörnu

Ferðamaður sem ætlaði á snorkla í Silfru í Þingvallarþjóðgarði var heldur betur óhress með að það væri skilyrði að kunna að synda til þess að mega snorkla í Silfru. Skjáskoti af einkunnargjöf ferðamannsins var deilt á hópinn Bakland Ferðaþjónustunnar.

„Smá fyndið á föstudegi. Ég hef oft snorklað í Silfru og einhvern veginn gerði ég mér alltaf grein fyrir því að við að fara út í tugi metra djúpt vatn þá kæmi sundkunnátta að einhverjum notum,“ skrifar sá sem birti skjáskotið.

Ferðamaðurinn skrifar á síðuna Trip Advisor að þetta hafi verið ömurleg reynsla. Það hafi hvergi komið fram að maður þurfi að kunna að synda til að mega snorkla í Silfru.

„Eftir að ég fór í vatnið, í stað þess að aðstoða mig bað leiðbeinandinn mig um að snúa við. Hann sagði að hann gæti ekki hjálpað mér út af ég kann ekki að synda,“ sagði ferðamaðurinn, sem beið í klukkutíma eftir hópnum sem fékk að snorkla.

Fleiri fréttir