Í hópnum Matartips er að finna margar skemmtilegar tillögur og sögur af mat sem fólk prófar, bakar og eldar. Tinna Rúnarsdóttir deildi þar í gær tveim myndum, annars vegar af nornafingrum sem hún ætlaði að panta í bakaríi á Íslandi og svo af fingrunum sem hún fékk í hendurnar.
Eins og má sjá á myndinni að ofan er ekki alveg um sömu fingur að ræða.
Færslan vakti mikla athygli í hópnum og einhverjir sem segja fingurna eiga heima í bökunarþættinum Nailed it sem er á finna á Netflix. Það má eflaust deila um það en það má þó taka fram að Tinna fékk fingurna endurgreidda eftir að hún vakti athygli á samanburðinum við bakarann.