Mynd dagsins: Myndir þú borga 42 milljónir fyrir þetta?

Mynd dagsins kemur frá Facebook síðunni Smartbílar, þar sem verið er að auglýsa 2022 GMC rafmagns Hummer.

Bíllinn er vissulega glæsilegur, með öllu því nýjasta og flottasta sem tækni hefur upp á að bjóða.

Hins vegar hefur verðið á bílnum sjálfum, en samkvæmt auglýsingunni kostar bíllinn 41.990.000 krónur.

Margir hafa svarað auglýsingunni og lýst undrun sinni á verðinu.

Einn Facebook notandi segir: „Lol, mislas. Sýndist standa þarna að þetta kostað fjörtíuogeina milljón...... einhver ruglingur í mér.“

Annar segir bílinn kosta minna í útlöndum: „Kostar ekki þessi bíl í kringum $115.000 úti?“

Fleiri fréttir