Mynd dagsins kemur úr Vestfirskri átt, en Ísfirðingurinn Ragnar Sigtryggsson deildi mynd af snævi þöktum veg og þakkar lögreglunni fyrir að hafa leyft bílum að vera lengur á nagladekkjum.
Á sama tíma skýtur hann létt á Gísla Marteinn Baldursson, sem er ötull talsmaður um bíllausan lífsstíl.
„Mikið er ég nú glaður að hafa ekki hlustað á Gísla Martein og farið yfir á sumardekk. Naglarnir héldu mér á lífi í dag,“ segir Ragnar á Twitter og þakkar um leið lögreglunni fyrir að virða tilverurétt fólks sem býr ekki í miðbæ Reykjavíkur.
„Takk lögreglan fyrir að virða tilverurétt okkar sem búum utan 101 og sýnið honum og aðstæðum okkar skilning.“
Einn Twitter notandi er ekki sáttur við þessa færslu frá Ragnari og segir: „Þú ert aaaaðeins að misskilja þessa umræðu. Hvernig getur lögreglan upp á sitt einsdæmi ákveðið að fylgja ekki eftir lögum? Plús að nagladekkjanotkun í borginni er margfalt meiri en hún ætti að vera miðað við þörf, sem bitnar á lífsgæðum okkar sem þar búa.“
Sem Ragnar svarar: „Ég er allavega andandi og á lífi, ekki steindauður út í skurði meðan fjölskyldan fær fréttir af ótímabæru andláti mínu - sætti mig við að misskilja þessar chernobyl aðstæður ykkar á meðan.“
Mikið er ég nú glaður að hafa ekki hlustað á @gislimarteinn og farið yfir á sumardekk. Naglarnir héldu mér á lífi í dag.
— Ragnar H. Sigtryggsson (@RaggiHS) May 4, 2022
Takk @logreglan fyrir að virða tilverurétt okkar sem búum utan 101 og sýnið honum og aðstæðum okkar skilning 🙏 pic.twitter.com/2Voi2qIWTr