Mynd dagsins kemur úr Facebook hópnum Algjörlega óáhugaverðar (og ögn áhugaverðar) landafræðiupplýsingar þar sem fólk deilir skemmtilegum myndum og staðreyndum um landafræði.
Notandi í hópnum deildi skemmtilegu skjáskoti af austur-Mosfellsbæ á google maps, sem er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þar má finna heldur undarlegt uppboð, mellu uppboð mosfellsbæjar.
Ekki er vitað hvort um sé að ræða alvöru uppboð, en myndin hefur vakið mikla athygli innan hópsins.
Einn notandi spyr:
„hmmm..... er þetta nýsköpunarverkefni þarna í Mosfellsbæ?“
Á meðan annar veltir fyrir sér hvaða starfsemi er í húsinu, en samkvæmt heimildum Hringbrautar er ekki neitt mellu uppboð þarna.