Lögreglan virðist fara á óþekka-listann hjá jólasveininum ef marka má nýjustu færslu þeirra á samfélagsmiðlum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lengi verið þekkt fyrir frumlegar færslur á Instagram, sem oftast er á léttari kantinum og nýjasta færslan er alls engin undantekning.
„Jóli ... varaðu þig,“ skrifar lögreglan og birti mynd af lögregluþjóni með skilti sem á stendur: „Óþekk“. Ekki kemur fram hvað lögreglan hefur gert af sér til að verðskulda þennan sess á lista jólasveinsins, en það hlýtur þó að vera innan marka laganna. Löggan ætti nú að vita betur en allir aðrir að haga sér vel um jólin, annars fær hún kartöflu í skóinn.