Langflestir Íslendingar kannast eflaust við það að hafa á einhverjum tímapunkti skoðað ætt sína í gegnum Íslendingabók en Twitter notandinn Dísa komst að skemmtilegri tilviljun þegar hún skoðaði fjölskyldu langafa síns.
„Langafi minn átti fjórar systur, og þrjár af þeim hétu Oddný?“ skrifar Dísa við skjáskot af Íslendingabók. Þá bendir hún á að langalangafi hennar hafi átt dæturnar með þremur mismunandi konum og skýrt þær allar í höfuðið á mömmu sinni.
Í svari við færsluna skrifar önnur að það hafi verið algengt á þeim tíma að nefna börn sama nafni þar sem vöggudauði var algengur og reynt var að koma alla vega einu barni upp. „Já það getur vel verið, kannski vildi hann bara vera viss um að mamma sín myndi eiga amk eina nöfnu sem lifði fram á fullorðinsár,“ svarar Dísa.
Langafi minn átti fjórar systur, og þrjár af þeim hétu Oddný? pic.twitter.com/9YI35bcq7x
— Dísa (@disadisadisa) June 18, 2020