Mynd dagsins: Hlauparar pissuðu á vegg — Tveir kamrar við veginn

Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni í morgun hlupu beint framhjá tveimur kömrum og pissuðu frekar á vegg við fjölbýlishús Eiðsgranda þegar þeim var mál.

Íbúi í fjölbýlishúsinu varð vitni að þessu og birti meðfylgjandi mynd í hverfisgrúppu fyrir Vesturbæinn á Facebook.

„Vonandi þrífur borgin eftir þá sem ekki gátu haldið í sér, þó var ekki orðin biðröð við klósettin þarna eins og síðar. 10-12 manns að bíða eftir að komast á kamarinn í svona hlaupi lítur út eins og skipulagsmistök,“ skrifar hún við færslu sína.

Fleiri fréttir