Mynd dagsins: Gæsir hægðu á umferð við Háaleitisbraut

Gæsir hægðu á umferð við Háaleitisbraut um sexleytið í kvöld.

Viðstaddir sögðu gæsirnar hafa skundað af stað yfir götuna og skeytt engu.

Ökumenn voru þó ekkert að drífa sig sérstaklega; enginn flautaði eða var pirraður á þessum göngutúr enda höfðu allir bak við stýrið skilning að grasið væri trúlega grænna hinum megin.

Fleiri fréttir