Mynd dagsins: Frið­rik Jóns­son svarar Sól­veigu Önnu

Frið­rik Jóns­son, for­maður Banda­lags há­skóla­manna gagn­rýndi ný­verið hóp­upp­sögn allra starfs­manna Eflingar á Face­book síðu sinni.

Sagði hann meðal annars: „Þessar fréttir af yfir­vofandi hóp­upp­sögn allra starfs­manna Eflingar vekja óhug. Ýmis­legt orkar hér tví­mælis að því er virðist og nokkuð lík­legt að ef hér væri á ferð at­vinnu­rekandi innan vé­banda Sam­taka at­vinnu­lífsins sem færi fram með þessum hætti að við­brögð verka­lýðs­hreyfingarinnar yrðu af­dráttar­laus.“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar var ekki sátt við þessa gagn­rýni og svaraði henni fullum hálsi á Face­book og kallaði hún Frið­rik „leið­toga prósentu­hækkana­fólksins og sagði meðal annars:

„Maðurinn hlýtur að geta fundið sér eitt­hvað annað að gera, til dæmis að plotta hvernig hann ætlar að grafa undan kröfum vinnu­aflsins um krónu­tölu­hækkanir í næstu kjara­samningum (eða í það minnsta hvernig hann ætlar að gera leyni­samning við ríkið um að um­reikna krónu­tölu­hækkanir yfir í prósentu­hækkanir fyrir hærra launaða BHM -með­limi, en slíkt ó­heiðurs­manna-sam­komu­lag var gert í síðustu samningum)“.

Frið­rik hefur svarað þessum við­brögðum Sól­veigar á Twitter á spreng­hlægi­legan hátt:

„Við­brögð formanns Eflingar við gagn­rýni minni á mis­notkun stjórnar hennar á hóp­upp­sögn er að upp­nefna mig "leið­toga prósentu­hækkana­fólksins." Fannst það eigin­lega nokkuð kúl þar til einn vina minna betr­um­bætti það í "Prósentu­prinsinn...!"

Fleiri fréttir