Mynd dagsins á Elísabet sem birtir mynd af skilti í Mörkinni þar sem stendur „Einkalóð stranglega bannaðar aðgangur“ á grashól nálægt gönguleið í hverfinu.
„Ég fer alltaf í mótþróakast þegar ég sé þetta skilti,“ skrifar Elísabet endar verður að teljast skrýtið að um einkalóð sé að ræða.
Björn Leví Gunnarsson þingmaður tekur til máls og spyr: „Hversu stranglega? Ég meina hver er munurinn á bannaður aðgangur og stranglega bannaður aðgangur?“
Kristín Ólafsdóttir bendir þó á að þetta sé öryggisatriðið fyrir aldraða sem þarna búa að óviðkomandi séu ekki á þessu svæði líkt og með skólalóðir.
Elísabet segir að þessar upplýsingar sefa mesta mótþróann
ég fer alltaf í mótþróakast þegar ég sé þetta skilti 😡 pic.twitter.com/JNMwa1mjJM
— ⚔️ e-bet (@jtebasile) August 11, 2022
Bannað er fyrir 12 ára+, en stranglega bannað fyrir 16 ára+😊
— 🌻Heiða🌻 (@ragnheidur_kr) August 11, 2022