Guðmundur Felix Grétarsson kom til landsins í síðustu viku í fyrsta sinn í um árabil. Ítarlega hefur verið greint frá því undanfarna mánuði hvernig honum hefur gengið eftir að græddir voru á hann nýir handleggir í janúar á þessu ári.
Guðmundur Felix er hér til að hitta fjölskyldu sína en er einnig að nýta tímann til annars því í kvöld er hann, ásamt eiginkonu sinni og fjölskyldu, að borða með forsetanum og frú.
Hann deilir á Facebook myndum af sér og eiginkonu sinni, Sylwiu Gretarsson Nowakowska, í sínum fínustu klæðum.
Sjón er sögu ríkari. Myndirnar má sjá hér að neðan.